 |
 Flott mynd? Jájá hlæðu bara, hláturinn lengir lífið! :) Jább ég heiti Sara Eik, ég er fædd 16.01.87 msn: lorilei87@hotmail.com
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
Oct 31, 2006
Aloh Salut... Ég er komin með nýja síðu sem you better go check out!
www.saraeik.bloggar.is
Posted at 11:31 am by SarasjEik
Permalink
Jun 6, 2006
Jú jú ætli maður smelli ekki inn fyrir ykkur örfáum vel-og útvöldum myndum frá Búlgaríu fyrir lömbin... ég held nú það! Núh, þetta erum við stöllur - Sara og Birna í flugvélinni á leiðinni til Búlgaríu. Sumarfílingurinn leynir sér ekki.  Hahaha þetta er þegar Ingi, Árni og Andri birtust allt í einu eftir greinilega skemmtilegan verslunarleiðangur! Á myndinni má hins vegar sjá einn Tyrkja og tvo Rússa :)
Svenni og Andri með bleika rómantíska kokteilinn sinn á Prima steikhús. Afgangurinn af hópnum stóð fyrir sendingunni eftir að hafa fengið sent hvítvín frá strákunum inn á borð.  Segir mér svo hugur að þetta séum við Birna. Þá staddar á Dolphin með swimmingpool við hönd. Afbragðsgóður drykkur... alveg eðal fyrir sundlaugarvörð eins og mig ;)
 Og já, þetta er hann Andri... að ógna MC Donalds trúðnum - með byssu!
Þarna erum við náttúrulega bara komin á bananabát og á leið út á Svartahafið þar sem við máttum síðan troða marvaða í óratíma eftir að hafa flogið af bátnum!  Endum þetta svo á mikilli byggingu, en þetta er Dómkirkjan í Varna.
Já, þetta eru semsagt 7 af þeim 274 myndum sem ég tók.... jebbs, nóg til ;)
Posted at 06:02 pm by SarasjEik
Permalink
Jun 5, 2006
Þegar hjartað verður grænt...
Það þýðir nú lítið að ætla að halda uppi bloggsíðu yfir sumarmánuðina... enda fólk önnum kafið við að sleikja sólina, dansa í rigningunni eða fjúka með vindinum. Sumarið er tíminn þegar hjartað verður grænt og augun þín verða himinblá - ójá. En jæja, nú er ég allavega komin heim og bara beint inn í þetta líka fína helgarfrí eftir ægilega góða ferð til Búlgaríu. Í Búlgaríu áttum við hópurinn (9 útskriftarnemar og 2 makar og 1 ekki maki) góða viku sem var auðvitað nýtt alveg til fulls, en það má segja að maður hafi upplifað endalausar nætur - sofið lítið sem ekkert og skemmt sér miiiikið. Það sem við sáum af Búlgaríu var nú aðallega okkar svæði - Golden Sands, en svo fórum við til Varna einn daginn og ráfuðum um göngugötur í leit að einhverju eigulegu til að festa kaup á... Við Birna skelltum okkur í einskonar kauphlaup - já já það þýðir ekkert að vera að máta eða hugsa sig tvisvar um í svona ferðum, bara hlaupa og kaupa! Svo skoðuðum við nokkur Dómkirkjuna í Varna. Einn dagurinn var tekinn í vatnsrennibrautagarði og var það ekkert nema frábær skemmtun. Kvöldin okkar fóru svo oftast í eitthvað pöbbarölt, en Amfora, Dolphin og Bonkers eru þeir staðir sem standa upp úr að mínu mati. Fólkið þarna úti er ógnvænlegt. Það eru pissulöggur í hverju sundi og hórur á hverju horni, kiralískt letur er notað og maður kinkar kolli þegar maður er ósammála en hristir þegar maður er sammála. Skrítið það. Það má ekki henda rusli á jörðina og alls ekki pissa úti - þá birtist hópur pissulögga og heimtar pening eða hótar að fara með þig í fangelsið. Taxarnir eru ógeð og oftar en ekki taxar... Já, maður er hvergi óhultur og má aaaldrei vera aleinn. Þá getur maður barasta horfið. (Bara svona vara fólk við sem á eftir að fara kannski ;) Óg já, Iglika er ekki gott hótel. :P En hvað um það, ég skemmti mér konunglega ójá! Þetta var alveg frábært og þakka ég bara ferðafélögum mínum öllum hér með fyrir svaðalega góða ferð - en maður komst ekki í það að þakka öllum í Leifsstöð, þar sem það tók fólk mislangan tíma að komast í gegn um tollinn ;) Þessa helgina er ég búin að vera mest uppi í Lóni með Sigrúnu Ingu og Steina sem er náttúrulega bara best í heimi! Búin að labba alveg lengst inn í einhvern dag, grilla og liggja í sólbaði. Svo er ég búin að rúnta með Jóhönnu, fórum allaleið út á Jökulsárlón á laugardagskveldið - flottar á því! Og ég er búin að hitta Rósu, Sigurborgu og Guðjón... já já já bara nóg að gera. Jæja lömbin mín, þá segi ég þetta bara gott í bili, vona nú að einhver sjái sér fært um að lesa þetta.... Engin mynd fylgir í þetta skiptið - en hver veit nema einhverjar útvaldar birtist síðar. Bæjó ;)
Posted at 12:31 pm by SarasjEik
Permalink
May 23, 2006
We´re going to the Golden Sands...
Jæja jæja jæja... ætli maður verði ekki að blogga oggu ponsu núna, þar sem maður fer nú ekki að eyða tíma í það næstu vikuna eða svo :) Julie Zulu er búin að vera hér í bæ síðan á miðvikudaginn og hefur það nú aldeilis verið frábært að hafa stelpuna hérna! 3-sommið er búið að rúnta stöðugt og spassast eins og okkur einum (þremur) er lagið, og svo fórum við sem hefðarfrúr út að borða í gær. Útskriftin mín var á laugardaginn og var það góður og gleðilegur dagur. Sjálf athöfnin var fín, einkunnirnar líka, litla kaffisamsætið mitt með vinum og fjölskyldu var voða huggulegt og svo Euruvisionstemmning um kveldið. Svo var kíkt í stúdentapartý til Eddu síðar um kvelið og nefið (og húfan) aðeins rekið inn á Víkina... En skemmtilegast var nú bara Partý Passat (í bílnum hennar Júlíu (eða foreldra hennar)) þar sem DJ.Birna var að gera góða hluti! Nú er kominn þriðjudagur. Í dag þarf að pakka og gera allt sem þarf að gera, áður en við leggjum í hann til Reykjavíkur í fyrramálið og fljúgum svo til Búlgaríu snemma morguns næsta dag. Við verðum víst komin út á völl um nóttina og til Búlgaríu á besta tíma á fimmtudag. Ég get ekki beðið! Við Birna erum búnar að plana allskonar þemu til að sýna smá lit á kvöldin, en við ætlum auðvitað að mála bæinn rauðan og fá okkur hatta og strápils og stjörnuljós og axlabönd og gettóblaster og fleira og ekki kjúkling.... Fjúff jæja ég held það sé bara best að byrja að pakka og svona, jææææks ég hlakka svo til! :D ....Við komum til landsins 1.júní, höfum vonandi frá mörgu skemmtilegu að segja þá!
P.s Ég og Birna fundum ástkonu Bjössa dóna um daginn. Hún heitir Bjarndís dóni og horfðu þau löngaraugum hvort til annars í gegnum bílrúðurnar. Sannkallað Kodak moment en við höðfum engan kubb. Coca-Cola styrkir fjarsamband þeirra.
Posted at 10:38 am by SarasjEik
Permalink
May 19, 2006
Hún var totally svöl, hefði pottó geta orðið stolt okkar Íslendinga með mikilum sóma. Hún rauk upp og beint í sitt blómaskeið, en svo datt hún. Tár tár. Mér fannst rennibrautin á sviðinu algjör snilld!... fólk er svosem fífl að púa á hana... En það var of langt gengið að fkn hrækja á fréttamenn! Jama hahaha
Posted at 12:42 pm by SarasjEik
Permalink
May 13, 2006
Laugardagurinn 13. maí 2006. Var að vinna. Stökk út í laug og bjargaði barni. Mér líður vel.
Posted at 03:52 pm by SarasjEik
Permalink
May 9, 2006
Mig langar í nammi!!! Mig langar í bragðaref!!! Arrggh hvað það er erfitt að vera í nammibanni og ísbanni (good God!!), en ég hef núna náð að standast freistinguna, dagarnir líða og þetta venst. Nú er setu minni í FAS lokið, ekki formlega svosem, en síðasta prófið mitt var eiginlega í morgun... á samt dönskuprófið frá Ármúla eftir, stefni á það á föstudaginn held ég bara. Ég held að þetta sé bara allt að ganga þokkalega :) Á fimmtudaginn höfum við Birna hugsað að gera okkur glaðan dag og skreppa í Hólm og kíkja á lömbin. Það er náttúrulega ekkert nema nauðsynlegt. Veðrið er frábært í Hornafirðinum um þessar mundir, ég er alltaf í sundi! ...og úti í garði með dönskubók við hönd. Svo erum við Rósa líka búnar að vera hörku duglegar og fara út að labba eða skokka síðustu daga, Mjöll trúlega ánægð með það. Í gær fór ég líka með Mjöll í hjólatúr, ánægð með stelpuna, hún hljóp svo stillt með ;) Nú er útskriftarhúfan komin í hús og ég stóðst nú ekki mátið áðan og skellti mér í allan búninginn ;) Verst að maður verður komin með heavy bikinifar :/ Fínt við kjólinn ehe... Já, já þetta er allt að gerast og ég held bara áfram að telja niður:
11 dagar í útskrift og 16 í Búlgaríu! Getur það verið???
Posted at 07:35 pm by SarasjEik
Permalink
May 7, 2006
Þá eru prófin skollin á... hvur skollinn! Var í eðlisfræðiprófi á fimmtudaginn, fer í tölfræði á morgun og sögu á hinn... og dönskuprófið tek ég svo bara þegar ég vil ;)
Það er bara búið að vera sól og blíða þessa dagana... ekki mjög gott með próflestrinum, en í gær sat ég svosem úti á stétt og las og las. Ég er bara búin að vera ein heima, sem er afar fínt bara, sérstaklega þegar maður þarf að læra mikið og er leiðinlegur. Talandi um að vera leiðinlegur þá ætla ég hér með að segja eitt sorry við alla þá sem ég og Birna vöktum ekki klukkan 2 á föstudaginn þegar við duttum allt í einu inn á ball. Vona að enginn hafi farið í varanlega fýlu... en Æ við vorum bara á Kjeffi Horninu og fengum okkur kakó og appelsín, vorum eitthvað að rúnta og kíktum svo á ball á Víkinni... bara af því við fengum nú frítt inn ;) Það má segja að þetta hafi verið ódýrt kvöld með eindæmum og Spútnik ekki að gera góða hluti. Svona var nú það já. Í gær var ég bara að sleikja sólina, læra og svoleiðis og ætla að halda því áfram núna.

Bara verið að ná sér í smá tan???
-18 dagar í Búlgaríu! ;)
Tjuss :P
Posted at 03:29 pm by SarasjEik
Permalink
May 3, 2006
Run Running all the time Running to the future With you right by my side
Me I'm the one you chose Out of all the people You wanted me the most I'm so sorry that I'm falling Help me up lets keep on running Don't let me fall out of love
Chorus: Running, running As fast as we can I really hope you make it (Do you think we'll make it?) We're running Keep holding my hand It's so we don't get separated
Be Be the one I need Be the one I trust most Don't stop inspiring me Sometimes it's hard to keep on running We work so much to keep it going Don't make me want to give up
Repeat chorus twice

Posted at 09:30 pm by SarasjEik
Permalink
Apr 29, 2006
Ó díó... ég var að dimmitera í gær. Störtuðum góðum degi í teiti hjá Þóru Björgu klukkan 08:00 og klæddum okkur upp. Héldum svo upp í skóla í víkingaklæðunum með sverð og læti eftir að hafa drukkið morgunkaffi saman - svokallað sólarkaffi, en gula glennan á himninum var alls ekki að spara sig þennan fallega dag. Við krýndum kennarana sem krupu á kné til riddara hvern á fætur öðrum og hlaut hver þeirra hina skemmtilegustu nafnbót. Svo löbbuðum við rúnthringinn, kíktum á Berta bæjó og til sýsla og svona... og prófuðum auðvitað allar lyfturnar í bænum á þessu flakki okkar! Í fararbroddi var kona ökukennarans, Ingibjörg, en hún keyrði eins og herforingi með hasarljósin á og flautaði á 5 sek. fresti. Bíllinn hennar var einmitt birgðastöð flokksins, en eftir því sem sól hækkaði á lofti fengu fleiri flíkur að fjúka og þá var ekki slæmt að hafa svala í farteskinu. Við fórum í “hlaupa í skarðið” á litlu umferðareyjunni okkar við gatnamótin Hafnarbraut/Víkurbraut og skemmtum okkur konunglega. Um hádegisbil vorum við orðin ansi skrautleg og tókum þá rúntinn á traktorskerru (traktorinn sjálfur var af gerðinni Zetor). Þar var spilað á gítar og sungið hástöfum. Svei mér ef hitinn úti hafi ekki eitthvað skekkt tímaskyn mitt, en ég held samt að bakaríið hafi örugglega verið næsti áfangastaður. Þar fengum við okkur sæti og höguðum okkur mjög vel í smá stund. Síðan vorum við komin út á Sparkvöll og farin í fótbolta – nánar tiltekið í úrslit allir á móti öllum og ég vann!!! :) Einar Smári var að gera góða hluti í markinu hehe og mátti ósjaldan heyra hann segja: “skjóttu kvikindinu” haha. Núh, við fórum svo í siglingu með Lóðsinum um klukkan tvö... en rétt áður en við stukkum um borð arkaði ég út á Hafnarbúð og keypti ís í brauði sem ég tróð í andlitið á mér og Eddu, gott ef Ingi fékk ekki smá slurk framan í sig líka. Það var fínt á sjónum, fórum eitthvað út fyrir Ós og urðum hundvot. Að siglingu lokinni var dagskráin búin – hlé fram á hálf 8. Þá hafði enginn neitt að gera en ég fór í smá “gettúgeðer” hjá Eddu sem samanstóð af henni, mér og Inga. Já já svo strunsaði maður heim og tók sig til, svo vorum við þarna 3-sommið samferða á Kaffihornið þar sem prúðbúnir kennarar og nemendur snæddu saman þriggja rétta máltíð og töluðu um gáfulega hluti. Við 16 sem vorum búin að vera úti allan daginn vorum eins og þvottabirnir í framan... eða pandabirnir eða hvað þetta nú heitir... svolítið steikt og brunnin eftir sólina sko með hringi í kringum augun og rauðar kinnar. Ég er einmitt með falleg hvít krossbönd á bakinu eftir böndin á víkingabúningnum. Á Kjeffi horninu komst ég enn og aftur að því hvað heimurinn er lítill, en María systir Valgerðar Hönnu kom mér á snoðir um það! (vona að þetta háfleyga orðatiltæki sé rétt, en ég er mjög góð í að klúðra svona orðatiltækjum!) Já, já fólk sletti svo úr klaufunum þarna fram á nótt. Ekki veit ég nú hvenær seinustu orkuboltarnir fóru heim, en ég entist allavega ekki fram á morgunn.
Krummi krunkaði úti og hélt fyrir mér vöku um stund, sem og sitthvað fleira. En ég var allavega löngu vöknuð þegar ég átti að fara að vinna en vissi ekki þá hvað þessi vinnudagur sem ég var að enda við að enda átti eftir að bera í skauti sér. Nei, nei, kóramót á Höfn. Tæplega 400 krakkar og allir í sund!!! Þau byrjuðu að hópast í laugina klukkan 12 (einmitt þegar ég var nýkomin)og þurftum við að hafa opið til 7 og þá tóku auðvitað stórþrifin við. Hún Nanna var nú svo góð að vinna fyrir mig frá 10-12 sko... annars hefði ég farið niður í kjallarann og dáið klukkan 5! Ég er mjög hrædd við að mæta dauðanum niðri í sundlaugarkjallaranum, því hann er viðurstyggilegasti staður sem ég hef komið á!
Já svo ég var bara í henglum og á bömmer í dag, but I'll blame it on the sun (vitna í texta Emiliönu Torrini) sem skein svo skært í gær. Varðandi henglana... þá er ég bara með vöðvabólgu og ætla að fá múttu til að hnoða bakið á mér eins og leir á eftir!!!
Bömmerinn.... ah það kemur fyrir besta fólk og okkur hin líka.
Hendi nokkrum myndum inn á þetta kvikindi.

Gangan mikla árla morguns.

Jolli og Tjörvi krýndir - Skúlhedmaster og ofursjarmör.

Já, lyftan var sko að lokast!

Blómabörnin með sólskinið í augunum

Gott dæmi um þvottabjörn á sólríkum degi :)
Posted at 08:39 pm by SarasjEik
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|